loksins varð jólaballið að veruleika og mikið var gaman. Reynir spilaði undir að sinni alkunnu snilld og Giljagaur og Stekkjastaur komu í heimsókn og dönsuðu með okkur í kringum jólatréð. Þeir færðu einnig öllum nemendum jólagjöf sem að sló í gegn að venju. Vegna veðurs vorum við búin að borða jólamatinn en við fengum kleinuhringi í tilefni dagsins í nónhressingu.