Karellen
news

Öskudagsfjör

17. 02. 2021

Öskudaginn var haldinn með pompi og prakt eins og okkar er vaninn. Mikil gleði og kátína var með daginn og allir í búningum sem að sló í gegn eins og alltaf. Öskudagsballið var haldið í tvennu lagi: yngri eining á fyrra ballinu og eldri á því seinna. Kötturinn var sleginn úr tunnunni og út kom poppglaðningur handa eldri einingu en sú yngri fengu rúsínur og saltstangir. Síðan hefur skapast sú venja að börnin ganga á milli deilda og syngja fyrir hvort annað og fá að launum saltstangir.

Furan: Elva, Guðrún, Magga og Fanney

Björkin: Ása, Katrín, Linda og Heiðdís

Víðir: Telma, Ágústa, Imma, Helena og Maja

Einir: Davíð, Davíð, Davíð og Davíð...... nei nei Silvía, María, Lína og Stefanía

© 2016 - 2024 Karellen