Karellen
news

Slökkviliðið í heimsókn

16. 10. 2019

Logi og Glóð fræða leikskólabörn um eldvarnir

Slökkvilið Akureyrar heimsækir elstu börnin í leikskólunum á svæðinu árlega til þess að fræða börnin og fjölskyldur þeirra um eldvarnir. Slökkviliðsmenn hafa slökkviálfana Loga og Glóð sér til halds og trausts í þessum heimsóknum en þau eru sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðsins í verkefninu. Hafa heimsóknirnar mælst vel fyrir. Tilgangur þeirra er einnig að tryggja traustar eldvarnir í leikskólunum sjálfum í samvinnu við starfsfólk. Verkefnið byrjar í byrjun september ár hvert og fer þá fulltrúi slökkviliðsins og tekur út brunavarnir í öllu leikskólunum á svæðinu.

Verkefnið nær yfir um 20 leikskóla sem eru á starfssvæðinu og börnin í elsta árganginum eru um 300 talsins.

Verkefnið fór af stað vorið 2007. Markmið þess er þríþætt:

  1. Að tryggja að eldvarnir í leikskólunum verði ávallt eins og best verður á kosið.
  2. Að veita elstu börnunum fyrstu fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim störf slökkviliðsmanna og búnað.
  3. Að minna foreldra og forráðamenn barnanna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir heimilisins í lagi og veita þeim leiðbeiningar um hvernig ná má því marki.

Við upphaf verkefnisins gera aðilar með sér samkomulag um eldvarnir og fræðslu. Slökkviliðið afhendir ýmis gögn sem tengjast verkefninu. Í samkomulagi um eldvarnir og fræðslu er kveðið á um hlutverk aðilanna.

Við viljum þakka þeim kærlega fyrir komuna og virkilega skemmtilegt og fræðandi spjall.

© 2016 - 2024 Karellen