Kíktum í jólakaffi í Snæsakaffi og upplifðum saman jólastemmingu. Snæbjörn og hans starfsfólk tók vel á móti okkur og fengum kakó, kleinur og kringlur. Sungum saman nokkur jólalög og nutum þess að vera saman. Takk fyrir frábærar móttökur og góða stund.