Karellen
news

Jólaböll í Krummakoti

14. 12. 2023

Þá eru jólaböllin okkar búin þetta árið. Börnin okkar tóku virkilega vel undir hjá honum Reyni píanósnillingi. Síðan komu jólasveinarnir Giljagaur og Kertasníkir og þeir voru alveg sérlega skemmtilegir og dönsuðu með okkur í kringum fallega jólatréð okkar. Þeir gáfu sér líka tíma til að fara inn á 3 elstu deildirnar og spjölluðu við börnin í rólegheitunum. Það besta var að þeir færðu öllum börnunum í Krummakoti jólagjöf sem við allir voru mjög þakklátir fyrir.

© 2016 - 2024 Karellen