Karellen
news

Jólagarðurinn heimsóttur

12. 12. 2023

Hin árlega ferð okkar í Jólagarðinn til að hitta jólasveininn var farin í dag. Börnin mjög spennt að hitta jólasveininn sem að tekur alltaf svo vel á móti okkur. Við dönsuðum í kringum jólstréð og sungum nokkur jólalög saman. Síðan gaf jólasveinninn öllum börnunum jólagjöf áður en við röltum heim í Krummakot. Yngstu börnin okkar á Furunni ætla að kíkja í heimsókn þegar líður á vikuna.

© 2016 - 2024 Karellen