Karellen
news

Kærkomin gjöf í Krummakot

02. 02. 2024

Við tókum við kærkominni gjöf frá Kvenfélaginu Hjálpinni í dag. Við fengum um 110.000.- krónur og keyptum fyrir það: trampólín, skynjunarrólu, kjöltupúða með þyngingu, þrýstivesti og tvöfalt þrautabretti.

Til að afhenda þessa frábæru gjöf komu þær Auður, Eva Rakel og Freyja Sól frá kvenfélaginu Hjálpinni.

Enn og aftur þúsund þakkir fyrir okkur, nemendur Krummakots munu svo sannarlega njóta góðs af þessari fallegu gjöf.

© 2016 - 2024 Karellen